Einn af jólasiðum Áslandsskóla er að sýna í verki þjónustu við samfélagið sem er ein af hornstoðum skólans. Við munum eins og undanfarin ár styrkja Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem aðstoðar þær fjölskyldur í Hafnarfirði sem þurfa á aðstoð að halda í desember. Fulltrúi frá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar kom í skólann á stofujól og tók við styrknum. Hér eru nemendur í 5. bekk með okkur við afhendingu og fulltrúi Mæðrastyrksnefndar Hafnarfjarðar sagði frá og fræddi þau um í hvað styrkurinn fer. Gleðilega jólahátíð.