Bekkjarfulltrúar

Foreldrar

Hlutverk bekkjarfulltrúa er að stuðla að auknu samstarfi foreldra, kennara og nemenda innan hvers bekkjar, meðal annars með því að halda viðburði fyrir bekkinn utan skólatíma.

Bekkjarfulltrúar

Bekkjarfulltrúar (eða bekkjartenglar) eru kosnir af foreldrum í hverjum bekk eða tilnefndir í samráði við fyrri bekkjarfulltrúa. Æskilegt er að bekkjarfulltrúar séu minnst tveir fyrir hvern bekk og að einungis sé skipt um annan bekkjarfulltrúann á hverju ári, þannig að allavega annar sitji 2 ár í senn. Í byrjun september skal liggja ljóst fyrir hver verður bekkjarfulltrúi fyrir skólaárið. Gott er að nýta námsefniskynningar til að ganga frá vali.

Það er yfirleitt fyrsta hlutverk bekkjarfulltrúa að kalla foreldra í bekknum saman til að ræða um hvað þeir leggja til að gert verði um veturinn. Á þeim vettvangi er til dæmis rætt um bekkjarandann, tengslanet foreldra, upplýsingaflæðið milli foreldra og skóla og uppeldisleg gildi.

Lykla af skólanum vegna bekkjarviðburða er hægt að nálgast hjá skrifstofu skólans.

 

Árgangafulltrúi

Árgangafulltrúi í stjórn foreldrafélagsins er tengiliður milli stjórnar og bekkjarfulltrúa. Hann er ábyrgur fyrir að koma starfi bekkjarfulltrúa af stað að hausti og á að funda með þeim að minnsta kosti tvisvar á vetri.