Foreldrarölt

Foreldrar

Tilgangur foreldrarölts

Foreldrarölt er fyrst og fremst vegna þess að okkur er ekki sama. Við viljum varna því að börnin okkar lendi í vanda. Við viljum líka koma í veg fyrir hópamyndanir eftir löglegan útivistartíma. Nærvera fullorðinna þar sem börn hafa safnast saman hefur róandi og fyrirbyggjandi áhrif. Líkur á að unglingarnir lendi í aðstæðum sem ógna þeim eða hræða minnka þegar fullorðnir eru nálægir og gefur þeim tækifæri til að leita aðstoðar ef á þarf að halda.

Af hverju þú?

Langflestir foreldrar standa vel að sínum börnum og þau eru ekki úti eftir að lögbundnum útivistartíma lýkur. Af hverju ættu foreldrar að fara út af heimilinu frá sínu barni til að passa annarra manna börn? Með því að taka þátt í foreldrarölti höfum við áhrif á hverfisbraginn og það félagslega umhverfi sem við, og börnin okkar, búum við. Því færri sem nota vímuefni, eru lagðir í einelti eða beittir einhvers konar ofbeldi, því betra og öruggara er umhverfi okkar. Við berum öll ábyrgð á okkar nánasta umhverfi og eigum að sýna þeim sem eiga í vanda að okkur er ekki sama. Auk þess kynnumst við fleiri foreldrum, höfum gott tækifæri til að ræða sameiginleg áhugamál og, síðast en ekki síst, eigum ánægjulega stund saman á heilsubótargöngu um hverfið okkar!

Skipulag foreldrarölts

Bekkjafulltrúar sjá um að manna röltið með því að hringja í 3–4 foreldra úr bekknum og biðja þá að rölta, eða rölta sjálfir. Mæting á röltið er við Ásinn, félagsmiðstöð Áslandsskóla. Foreldrar sem rölta ættu að vera allavega þrír, helst fjórir. Röltarar fara um hverfið fótgangandi (eða akandi ef fáir eru) og líta eftir hvort ekki sé allt með felldu – samansöfnuður barna eða unglinga á aldrei að eiga sér stað eftir lögboðinn útivistartíma.

Yfirleitt er miðað við að foreldraröltið sé á föstudagskvöldum frá kl. 21:45 til miðnættis. Ef hins vegar lítið sem ekkert er um unglinga á ferli má stytta það til 23:30. Ef sérstakur viðburður er í bænum á laugardagskvöldi, eins og dansleikur, er ástæða til að skoða hvort ekki eigi að rölta frekar það kvöld.

Áríðandi er að skila skýrslu um röltið á [email protected] og [email protected]. Skýrslan þarf ekki að vera löng.

Útivistartími yfir vetrartímann (1. september til 1. maí) 

  • Börn 12 ára og yngri mega lengst vera úti til klukkan 20:00.
  • Börn 13 til 16 ára mega lengst vera úti til klukkan 22:00.

Útivistartími yfir sumartímann (1. maí til 1. september)

  • Börn 12 ára og yngri mega lengst vera úti til klukkan 22:00.
  • Börn 13 til 16 ára mega vera lengst úti til klukkan 24:00.

Aldursmörk miðast við fæðingarár en ekki fæðingardag. Sem þýðir að 1. janúar þess árs sem börn verða 13 eða 16 ára lengist útivistartími.

Hvernig á að hegða sér á foreldrarölti?

  • Við eigum að sjást. Gott er að vera í endurskinsvestum sem flestir skólar útvega.
  • Við eigum helst ekki að vera færri en fimm saman, en röltum þó að einhvern vanti.
  • Við þurfum að vera til taks ef unglingarnir þurfa á okkur að halda.
  • Við þurfum að geta hlustað og leiðbeint án þess að stjórna.
  • Við hringjum á lögreglu ef upp koma árekstrar, ofbeldi, slys, vímuefnaneysla og -sala eða annað sem krefst afskipta. Tökum fram að við séum foreldrar á rölti.
  • Við ræðum ekki málefni einstaklinga sem við mætum á foreldrarölti við óviðkomandi.

Tillaga að tölvupósti á foreldra í bekknum

Sæl öll sömul,

Foreldrarölt okkar bekkjar er á morgun, það væri frábært að fá a.m.k. 4 með. Það er mæting kl 21 :45 í Ásinn (á unglingagangi). Rölt er um hverfið í rúmlega klukkutíma.

Eftir röltið er mikilvægt að einn úr hópnum sendi skýrslu á [email protected] og [email protected] og segi frá í örfáum orðum hvernig röltið gekk. Allar frekari upplýsingar eru á síðu skólans undir Foreldrar > Foreldrarölt.,

Kær kveðja,

Bekkjartenglar

______ (mamma XXXXXX) og _______ (pabbi XXXXX