Úrslit Stóru upplestrarkeppninnar í Hafnarfirði fóru fram í Víðistaðakirkju þann 17. mars. Keppnin er 30 ára og var einkar glæsileg dagskrá í tilefni þess og var forsetinn, ráðherra og bæjarstjóri viðstaddir keppnina. 

 

Úrslit Stóru upplestrarkeppninnar í Hafnarfirði fóru fram í Víðistaðakirkju þann 17. mars. Keppnin er 30 ára og var einkar glæsileg dagskrá í tilefni þess og var forsetinn, ráðherra og bæjarstjóri viðstaddir keppnina. Fulltrúar Áslandsskóla voru þau Andrea Líf Grétarsdóttir í 7. BBB og Þórir Sveinn Leósson í 7. EÞ og varamaður var Indíana Líf Grétarsdóttir. Keppendur hófu leika á því að lesa texta úr bókinni Fjársjóðsleit í Granada eftir Ólaf Pál Jónsson svo lásu þeir ljóð eftir nokkur valin ljóðskáld og að lokum fluttu keppendur ljóð að eigin vali. Fulltrúar okkar stóðu sig mjög vel og voru skólanum til sóma.

Dagskráin byrjaði á talkór nemenda úr 4. bekk Áslandsskóla sem var með kröftugan og skemmtilegan flutning. Nemendur í 6. bekkjum í skólum Hafnarfjarðar taka þátt í samkeppni um verðlaunateikningu sem prýðir boðskort keppninnar en í ár hannaði Ari Fannar Eðvaldsson í 6. SH í Áslandsskóla kortið og fékk hann viðurkenningu fyrir það.

Einnig var tilkynnt um sigurvegara smásagnakeppninnar sem er í 8-10. bekk. Sigurvegari hennar í ár var hún Lára Sigurbjörnsdóttir í 10. DGN í Áslandsskóla sem vann með söguna Gáttin til friðar. Við óskum þessum nemendum okkar innilega til hamingju með glæsilegan árangur.