Stoðþjónusta

Nám og kennsla

Farsæld barna

Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna tóku gildi þann 1. janúar 2022. Meginmarkmið laganna er að skapa umgjörð sem stuðlar að því að börn og foreldrar, sem á þurfa að halda, hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana.

Öll börn undir 18 ára aldri, og fjölskyldur þeirra, hafa aðgang að tengilið farsældar eftir því sem þörf er á.

Hlutverk tengiliðar er:

  • að hafa hagsmuni barns að leiðarljósi
  • að rækja hlutverk sitt í samstarfi og samráði við foreldra og barn
  • að veita upplýsingar um þjónustu í þágu farsældar barns
  • að aðstoða við að tryggja aðgang að frummati á þörfum barns
  • að skipuleggja og fylgja eftir samþættingu fyrsta stigs þjónustu í þágu farsældar barns
  • að koma upplýsingum til sveitarfélags um þörf fyrir tilnefningu málstjóra
  • að taka þátt í starfi stuðningsteymis eftir því sem við á

Þegar barn er  við nám í leik-, grunn-, eða framhaldsskóla er tengiliður þjónustu í þágu farsældar barns starfsmaður skólans þar sem barnið er við nám eða leik.

Áslandsskóli býður upp á ýmis úrræði til að styðja við börn og fjölskyldur þeirra.

Tengiliður farsældar

Úrræðalisti Áslandsskóla

Áslandsskóli býður upp á ýmis úrræði fyrir börn og fjölskyldur þeirra.

Nemendaverndarráð

Hlutverk nemendaverndarráðs er að taka við öllum erindum, bæði frá starfsfólki og foreldrum, um stuðningsþjónustu skólans og koma þeim í farveg sem leiðir til lausna á þeim.

Foreldrar sem telja að barn þeirra þurfi á stuðningi að halda geta haft samband við umsjónarkennara barns eða deildarstjóra stoðþjónustu, Jóhönnu Björg Másdóttur. Foreldrum er alltaf tilkynnt ef málum barna þeirra er vísað til ráðsins. Ráðið heldur fundi vikulega.

Í ráðinu sitja:
  • Skólastjórnandi
  • Námsráðgjafi
  • Hjúkrunarfræðingur
  • Sálfræðingur
  • Deildarstjórar

Umsjónarkennarar og aðrir eru boðaðir til fundar eftir þörfum. Ráðið er bundið þagnarskyldu um einkamál nemenda, að undanskildum atvikum sem ber að tilkynna samkvæmt lögum.

Heilsugæsla

  • Skólahjúkrunarfræðingur: Margrét Erla Finnbogadóttir
  • [email protected]
  • 585 4600
  • Viðverutími
  • Mánudaga 8:00–15:00
  • Þriðjudaga 08:00–12:00
  • Miðvikudaga 08:00–12:00
  • Fimmtudaga 08:00–15:00
  • Föstudaga 08:00–14:00 aðra hverja viku

Heilsuvernd skólabarna í Áslandsskóla er á vegum Heilsugæslunnar Sólvangi. Heilsuverndin er hluti af heilsugæslunni og framhald af ung- og smábarnavernd. Markmiðið er að efla heilbrigði nemenda og stuðla að vellíðan þeirra. Starfsfólk heilsuverndar skólabarna vinnur í náinni samvinnu við foreldra, skólastjórnendur, kennara og aðra sem koma að málefnum nemenda með velferð þeirra að leiðarljósi.

Þjónusta heilsuverndar skólabarna er skráð í rafræna sjúkraskrá heilsugæslunnar. Farið er með allar upplýsingar sem trúnaðarmál.

Helstu áherslur í heilsuvernd nemenda eru:
  • Fræðsla, forvarnir og heilsuefling.
  • Bólusetningar.
  • Skimanir.
  • Viðtöl um heilsu og líðan.

Unnið er samkvæmt leiðbeiningum Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu og Embættis landlæknis um heilsuvernd grunnskólabarna. Sjá nánar á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

Heilbrigðisfræðsla

Skipulögð heilbrigðisfræðsla er veitt í öllum árgöngum og er áherslan á að hvetja til heilbrigðra lífshátta. Eftir fræðslu fá foreldrar upplýsingar í tölvupósti um fræðsluna og gefst þá kostur á að ræða við börnin um það sem þau lærðu og hvernig hægt er að nýta það í daglegu lífi.

Markmið hverrar fræðslu eftir árgöngum er hægt að sjá á Heilsuveru.

  • 1. bekkur

    „Líkaminn minn“ – forvörn gegn kynferðislegu ofbeldi og hjálmanotkun.

  • 2. bekkur

    Tilfinningar.

  • 3. bekkur

    Verkefnabók um 6H heilsunnar (Hamingja, Hollusta, Hreinlæti, Hreyfing, Hvíld).

  • 4. bekkur

    Kvíði og slysavarnir.

  • 5. bekkur

    Samskipti.

  • 6. bekkur

     Kynþroski og endurlífgun.

  • 7. bekkur

    Bólusetningar.

  • 8. bekkur

    Sjálfsmynd og samskipti, hugrekki og endurlífgun.

  • 9. bekkur

    Kynheilbrigði og bólusetning.

  • 10. bekkur

    Geðheilbrigði, endurlífgun og ábyrgð á eigin heilsu.

Skimanir

Skimað er fyrir ákveðnum heilbrigðisvandamálum í 1., 4., 7. og 9. bekk. Þær felast í mælingu á hæð, þyngd og sjónskerpu. Nemendur í öðrum árgöngum eru skimaðir eftir þörfum. Ef frávik reynist í skimun er haft samband við forsjáraðila.

Heilsueflandi viðtöl um lífsvenjur og líðan

Þegar skimanir fara fram í 1., 4., 7. og 9. bekk ræðir skólahjúkrunarfræðingur við nemendur um líðan og lífsvenjur. Markmið viðtalanna er að styrkja vitund nemenda um eigið heilbrigði og líðan. Ef vart verður við vanlíðan eða áhyggjur er gripið til úrræða.

Bólusetningar

Bólusetningum er ætlað að verja einstaklinginn gegn alvarlegum smitsjúkdómum. Í 7. bekk er bólusett við mislingum, hettusótt og rauðum hundum (1 sprauta) og HPV (Human papilloma veirum) sem geta valdið leghálskrabbameini. HPV-bólusetning er gefin tvisvar með 6 mánaða millibili. Í 9. bekk er bólusett við barnaveiki, stífkrampa, kíghósta og mænusótt (ein sprauta).

Fyrir bólusetningu fá foreldrar tölvupóst með upplýsingum um tímasetningu. Það er á ábyrgð foreldra að láta bólusetja börn sín. Gott er að nemendur komi með bólusetningarskírteini sín í skólann þegar bólusetning fer fram.

Hafið samband við skólahjúkrunarfræðing ef:

  • talið er að barn sé ekki að fullu bólusett
  • óskað er eftir því að barn sé ekki bólusett
  • nánari upplýsinga er óskað

Sjá meira um bólusetningar

Veikindi og slys

Ef óhapp eða slys verður á skólatíma sér starfsfólk skólans um fyrstu hjálp. Þurfi nemandi að fara á heilsugæsluna eða slysadeild skulu foreldrar fara með barninu. Því er mikilvægt að skólinn hafi öll símanúmer þar sem hægt er að ná í þá á skólatíma barnsins. Ekki er ætlast til að óhöppum sem gerast utan skólatíma sé sinnt af heilsuvernd skólabarna.

Langveik börn

Mikilvægt er að skólahjúkrunarfræðingur viti af börnum sem eru með fötlun eða langvinnan eða alvarlegan sjúkdóm, til dæmis sykursýki, ofnæmi, flogaveiki, blæðingarsjúkdóma eða aðra alvarlega sjúkdóma. Hlutverk skólahjúkrunarfræðingsins er að skapa þessum börnum viðeigandi aðstæður og umönnun í skólanum í samvinnu við foreldra og starfsfólk skólans.

Lyfjagjafir

Samkvæmt tilmælum landlæknis um lyfjagjafir í grunnskólum eru sérstakar vinnureglur varðandi lyfjagjafir til nemenda á skólatíma.

Höfuðlús

Höfuðlús birtist reglulega í skólum landsins og er mikilvægt að foreldrar kembi hár barna sinna reglulega yfir skólaárið. Rétt er að láta skólann vita ef lús finnst í hári barns og skólahjúkrunarfræðingur getur leiðbeint varðandi lúsasmit.

Sérkennsla

Kraftheimar

Í Kraftheimum er unnið í samvinnu við nemandann, foreldra og forsjáraðila, heimaskóla og önnur úrræði eftir því sem við á. Nemendur Kraftheima eru skráðir í sinn heimaskóla meðan á námi stendur.

  • Kraftheimar er tilrauna skólaúrræði vegna alvarlegrar skólaforðunar og skólafráveruvanda.
  • Kraftheimar er úrræði til skamms tíma með það að markmiði að nemandi geti sótt sinn heimaskóla á ný.
  • Námsleg ábyrgð er á vegum heimaskóla en í samvinnu við starfsmenn Kraftheima annast tímabundið kennslu nemenda í umboði heimaskóla.
  • Nemandi er hvattur til að sækja viðburði og þjónustu í heimaskóla, t.d. skólaferðalög, félagsmiðstöð, nýta sér ráðgjöf s.s. námsráðgjafa í samvinnu við nemanda, Kraftheima og heimaskóla.

Þegar talað er um nemendur með skólaforðun og skólafráveruvanda er átt við:

  • Nemendur með alvarlegan félags- og tilfinningalegan vanda.
  • Nemendur sem hafa ekki mætt í sinn heimaskóla í langan tíma vegna djúpstæðrar vanlíðunar.
  • Nemendur sem eru með mikinn félagskvíða.

Meginmarkmið Kraftheima 

  • Að nemendur stundi staðnám í Kraftheimum og hefji aftur nám í sínum heimaskóla
  • Að nemendur öðlist meira sjálfstraust, seiglu og öryggi í félagslegum aðstæðum.
  • Undirbúa nemendur fyrir áframhaldandi nám

Leiðarljós starfsfólks

Í samvinnu við nemendur og forsjáraðila leggja starfsmenn Kraftheima sig fram við að skapa námsumhverfi þar sem samvinna, ábyrgð, tillitsemi og traust eru grunnstoðir í endurkomu til náms.

Umsóknaferli

Inntaka nemenda í sérúrræði er ákveðin af inntökuteymi. Inntökuteymi skipa skólastjóri grunnskóla viðkomandi sérúrræðis (með tvöfalt vægi), verkefnastjóri sérúrræðis, fulltrúi frá Barnavernd og kennslufulltrúi grunnskóla á skrifstofu mennta- og lýðheilsusviðs Hafnarfjarðar og skal vera samróma álit allra aðila ef veita á nemenda inngöngu í úrræðið. Umsóknir um inngöngu í deildina skulu berast til kennslufulltrúa grunnskóla á skrifstofu mennta- og lýðheilsusviðs Hafnarfjarðar.

Frekari upplýsingar veita: Jóhann Emil Elíasson og Sara Hrund Finnbogadóttir verkefnastjórar Kraftheima á netfangið [email protected]

Snjallheimar

Snjallheimar er yfirheiti stoðþjónustu í Áslandsskóla. Þangað sækja nemendur sem þurfa sérkennslu og aukinn stuðning. Sérkennsla er samkvæmt skilgreiningu sérstakur stuðningur í námi fyrir nemendur sem eiga erfitt með nám vegna sértækra námsörðugleika, tilfinningalegra eða félagslegra örðugleika eða fötlunar. Kennslan getur verið einstaklingsbundin eða farið fram í hópi, innan bekkjardeildar eða utan. Stuðningsfulltrúar aðstoða umsjónarkennara samkvæmt mati deildarstjóra sérkennslu.

Grundvöllur sérkennslu er greining á námsstöðu og vanda nemandans þannig að hægt sé að velja efni og aðferðir sem skila honum sem mestum árangri. Aðrar greiningar sem að gagni koma, eftir atvikum, geta til dæmis verið frá sálfræðingi, lækni, sjúkraþjálfara eða talmeinafræðingi. Greining á vanda nemanda og sérkennsla er alltaf unnin í samráði við foreldra og forsjáraðila. Sé um að ræða alvarlegan námsvanda er skrifuð einstaklingsnámskrá námskrá fyrir nemandann þar sem vikið er frá hinni almennu skólanámskrá eftir þörfum. Gott samstarf sérkennara og umsjónarkennara er einnig grundvallaratriði.

Þroskaþjálfun

Þroskaþjálfi sinnir nemendum með fötlun og flókin vanda ásamt því að þjálfa félagslegan þroska hjá þeim nemendum sem eru slakir í félagsfærni. Hann leggur áherslu á að auka sjálfstæði og líðan nemandans. Reynt er að finna leiðir sem henta nemandanum og hans þörfum en oft er stuðst við sjónrænt skipulag, félagsfærnisögur, TEACCH- aðferðina, CAT-kassann, Snillinga- og ART-námskeið.

Íslenska sem annað tungumál

Nemendur með íslensku sem annað tungumál fá íslenskukennslu á meðan þess er þörf. Þeir geta fengið undanþágu frá skyldunámi í dönsku og fengið í staðinn aukinn stuðning í íslensku, öðrum námsgreinum eða fengið metið nám á eigin tungumáli.

Skólinn hefur tekið í notkun svokallað Stöðumat til að meta grunnþekkingu nemenda af erlendum uppruna. Tekin eru nokkur viðtöl við nemandann og fær hann og fjölskylda hans tækifæri til að segja frá sjálfum sér, færni og áhuga. Í viðtölunum eru lagðar fyrir spurningar ásamt nokkrum verkefnum sem snúa að lestri, skrift og stærðfræði. Einnig á sér stað umræða um tungumál nemandans, menningu og hvernig nemandanum finnst best að leysa verkefni. Notast er við túlk í þeim viðtölum sem þörf er á.

Sálfræðiþjónusta

Sálfræðingur starfar í öllum grunnskólum bæjarins. Sálfræðingur skólans sinnir greiningu, fræðslu, stuðningi og ráðgjöf en ekki meðferð. Tilvísanir til sálfræðings berast í gegnum nemendaverndarráð eða brúarteymi grunnskólans. Samþykki foreldra verður alltaf að liggja fyrir. Tilefni beiðna geta verið margvísleg en áhersla er lögð á snemmtækt mat og greiningu á stöðu nemanda vegna náms, hegðunar og sálrænna erfiðleika.

Skólasálfræðingur í Áslandsskóla er Hjördís Inga Guðmundsdóttir. Viðverutímar sálfræðings eru á miðvikudögum og föstudögum. Beint símanúmer í Áslandsskóla er 585 4600.

Talmeinaþjónusta

Börn sem glíma við frávik í máli eða tali eiga rétt á greiningu talmeinafræðings ásamt sérkennslu og stuðningi við nám í grunnskóla. Talmeinafræðingur veitir einnig ráðgjöf til starfsfólks grunnskóla. Foreldrar geta óskað eftir greiningu og ráðgjöf talmeinafræðings, í öllum tilvikum þarf skriflegt samþykki foreldra að liggja fyrir áður en greining fer fram.